Fyrirheitna landið bíður
Þá er ég lagður af stað í ferðina miklu. Leitin að hinum heilaga gral hefur leitt mig víða en nú finnst mér ég verakominn á rétta slóð. Ég finn það. Ég er kominn til Fredrikstad, gamals virkisbæjar við landamæri fornu erkifjendanna Noregs og Svíþjóðar, þar sem ég mun eyða næstu þremur árum leitar minnar.
Hingað komst ég eftir langt og svefnvana ferðalag. Fimm tíma flug auk ferðalaga til og frá flugvöllum til að komast frá Kanada í nýja heiminum til Íslands, dagur í heimahögunum þar sem grái BMW fákurinn minn gerði allt sem í hans valdi stóð til að skilja ekki við mig, og loks flug til Noregs þar sem ég missti af rútu frá Ósló til Fredrikstad, eða Friðriksstaða eins og ég kýs að kalla bæinn, sökum tímamismuna-ruglings.
Ég komst þó á leiðarenda í heimu lagi og sömuleiðis föggur mínar allar. Íbúðin sem mun verða bækistöðvar mínar næstu mánuðina er afar vel útilátin af plássi en skrautmunir og húsgögn bera þess merki að eigandinn virðist hafa hætt að huga að íbúðalegri framþróun árið 1991 þegar nýöldin náði endanlega tökum á honum. Afríkugrímur, myndir af saxafónum, tíbetísk veggsjöl í bland við ömmubollastell og pastellitt klósett. Ég fæ fyrrverandi barnaherbergið, með fyrirtaks skrifpúlti, koju, bleikum gluggatjöldum og Moglí ljósi. Það þarf vart að taka fram að framkvæmdir eru fyrirhugaðar.
Á morgunn hefst námið, leit mín. Þrjú ár í leiklistaskóla.
4 Comments:
Gott að heyra að þú komst heill á leiðarenda. Njóttu lífsins í Fredrikstad.
Pési í Montreal
jii hljómar alveg yndislegt decorið í íbúðinni!..mér finnst samt að þú ættir að halda móglí ljósinu ;)
blessadur felagi
gangi ter vel i leiklistinni i noregi.
egill i ahmedabad
hehe móglí ljósið á að mynna þig á hver tilgangur ferðarinnar er og það langa og stranga ferðalag sem þú lagðir á þig.
Ég mun fylgjast með þér! Lofa síðan að kenna mömmu og pabba á skype-ið til að lækka símreikninginn ;)
p.s.
BMW saknar þín ægilega mikið og snökktir þegar hann fer í gang.
Skrifa ummæli
<< Home