Krossfarinn

Ferðin til landsins helga

maí 31, 2008

Iphigenia 2.0


Mér finnst merkilegt hvað sömu verkin eru sett upp aftur og aftur í leikhúsunum. Þá á ég við klassísk verk sem einhverra hluta vegna verða að vera á fjölunum með reglulegu millibili svo heimurinn gleymi þeim ekki. Shakespeare, Théckov og Ibsen. Þetta er sérstaklega slæmt hérna í Noregi þar sem stóru leikhúsin, með þjóðleikhúsið í broddi fylkingar, sýna ekkert sem ekki hefur sannað sig áður. Á tólf árum hefur þjóðleikhúsið að ég held frumsýnt þrjú ný norsk verk, þar af tvö eftir Jon Fosse sem er einn af stærstu leikritahöfundunum í dag. Ég þakka Guði fyrir að íslensk leikhús séu ekki jafn lokuð lifandi samlöndum sínum.
Þegar leikritara-snillingar koma fram á sjónarsviðið eru þeir oftar en ekki andsvar við ríkjandi stefnu. Þeir koma með nýjar hugmyndir, brjóta upp formið og hundsa reglurnar. Þetta gerist ekki með því að setja Pétur Gaut upp í 32. skiptið. Vissulega getur sýningin verið góðra gjalda verð, en hún verður lítið annað en endurgerð í skemmtanaskyni.

Ástæðan fyrir að þetta er ofarlega í huga mér nú er að bekkurinn minn er að setja upp gríska harmleikinn Iphigena. Reyndar er um nútímaútgáfu að ræða, nýtt verk byggt á upprunalega harmleiknum, og fátt stendur eftir úr 2.500 ára gömlu útgáfunni. Engu að síður þá finnst mér skrítið að gera ekki bara nýtt verk frá grunni og sækja innblástur í gamla verkið. En þá væri þetta líklegast ekki "alvöru harmleikur".

En hverjum er ekki sama. Ég fæ að tæma úr 9 mm púðurskotabyssu í pínulitlu leikhúsi. Við erum að tala um skilgreiningu á HÁVAÐA!

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/06/03/isbjorninn_felldur/

Því var ekki haft samband við okkur???

Hjalti

3. júní 2008 kl. 16:38  
Blogger Ólöf said...

já... sko... það er svo skemmtilegt með hlutina að það er alltaf hægt að sjá á þeim nýjar hliðar, ný sjónarhorn... auðvitað þurfa þá allir að vera vakandi fyrir því og þora að koma auga á það og gera eitthvað með það... skiluru hvað ég er að fara... þú færð leið á verki ef það er alltaf sett upp eins... en ef það er farið nýjar leiðir.. ja, þá er amk gaman að fara og sjá hvað er gert nýtt...
ég skil samt alveg hvað þú ert að fara... það er til fullt af áhugaverðum leikskáldum og góðum verkum sem væri nær að eiða orku og púðri í að setja upp... en leikhúsin eru líka oft að berjast við að fá til sín áhorfendur... og það er einhvernveginn þannig, eins heimskulegt og það kann að virðast að fólk kemur frekar að sjá leikrit sem búið er að sýna skrilljón sinnum í mismunandi uppfærslum, eitthvað eftir Ibsen eða Shakespea og þessa kalla... það fer síður að sjá ný verk eftir yngir og óþekktari höfunda jafnvel þótt þau séu jafnvel mun betri eða hafi mun meira skemmtanagildi og séu betur leikin eða uppsett... ég veit ekki hvað það er... kannski er fólk hrætt við nýjungar? illa við tilraunastarfsemi? óttast eitthvert listaspírurunk? er með eitthvað menntasnobb? vill kinna sér klassíkina...? velur það sem það þekkir af því það er "öruggt"?
hvað veit ég...
en það ætti alltaf að vera ögrandi verkefni fyrir leikara að takast á við hlutverk, gamalt eða nýtt, og finna sína eigin nálgun á það og krefja sjálfan sig um nýja hluti... sjá nýjar hliðar, uppgötva eitthvað nýtt og koma áhorfandanum á óvart... ekki satt?

en hvað veit ég... alsbera stelpan upp í sveit... með fullan garð af matjurtum...

kemuru ekki heim í sumar?!

4. júní 2008 kl. 11:51  

Skrifa ummæli

<< Home

|